Fjármálasérfræðingur / Bókhald og laun SÆKJA UM
Skrifstofa Í-MAT
Í-MAT
31 Jul 2025
Við leitum að öflugum og traustum einstaklingi til að taka að sér fjármálastjórn, bókhald og launavinnslu fyrirtækja undir Í-MAT. Um er að ræða fjölbreytt og ábyrgðarmikið starf í nánu samstarfi við eigendur, þar sem þú færð tækifæri til að móta þína stöðu og bæta verklag með þínum hæfileikum.
Helstu verkefni:
- Umsjón með bókhaldi og fjármálaverkefnum fyrirtækjanna undir Í-MAT
- Launavinnsla og uppgjör í samræmi við kjarasamninga og vinnuskráningu
- Móttaka, skráning og greiðsla reikninga, stýring útgjalda
- Útsending reikninga og eftirfylgni með innheimtu
- Gerð mánaðarlegra rekstraryfirlita og fjármálagreininga
- Undirbúningur gagna fyrir ársreikninga og samstarf við bókara og endurskoðanda
- Gagnagreining og umbætur á fjármálakerfum og verklagi
- Þátttaka í þróun á innri ferlum og verkfærum sem snúa að rekstri og stjórnun
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Háskólamenntun í viðskiptafræði, reikningshaldi, fjármálum eða skyldum greinum
- EÐA veruleg reynsla af bókhaldi og launavinnslu
- Þekking á DK bókhaldskerfi, kjarasamningum og launaútreikningum er mikill kostur
- Góð færni í Microsoft Excel og öðrum greiningarverkfærum
- Nákvæm og sjálfstæð vinnubrögð
- Frumkvæði og vilji til að bæta og þróa ferla
- Góð samskiptahæfni og jákvæðni í samstarfi
- Góð færni í íslensku og ensku, bæði í rituðu og töluðu máli
Góð íslenskukunnátta og hæfni til að tjá sig á íslensku og ensku, bæði í rituðu og töluðu máli
Ertu rétta manneskjan?
Ef þú hefur brennandi áhuga á fjármálum, vilt vinna að fjölbreyttum verkefnum og þróa starf með framtíðarsýn – þá viljum við heyra frá þér.